Rabbabara freyðivín

3.995 kr.

Virkilega gott og kemur skemmtilega á óvart
Skemmtilegur rabbabara ilmur og ferskt eftirbragð, frábær í fordrykk
eða í kokteila

Lettland, 750 ml, 12%

50 in stock

Category:

Description

Abavas Rabarbers er framleitt af fjölskylduvíngerðinni Abava sem var stofnuð árið 2010 og virðist vera orðið leiðandi í Lettneskri víngerð og þá sérstaklega í framleiðslu ávaxtavína. Þetta er framleitt úr úrvals rabbarbara frá Lettlandi og safinn látinn gerjast við lágt hitastig til þess að varðveita eins mikið af hinum fínlegu ilmolíum sem rabbarbarinn inniheldur.

Vínið er föllaxableikt á litinn og smá feimið í upphafi. Opnast fljótlega en heldur áfram að vera afskaplega fínlegt og er helst að finna ilm af rabbarbara (kemur svosem ekki á óvart) en einnig er glás af jarðarberjum ásamt rifsberjum, grösugum tónum og stikilsberjum. Virkilega frísklegur ilmur sem kemur munnvatnsframleiðslu í gang. Í munni er það ferskt, rétt eins og ilmurinn gaf til kynna en það er þó ögn sætara en á góðann hátt. Sýran er þó góð á móti og er jafnvægið afskaplega gott. Það endar svo á safaríkum rauðum berjum. Þetta er virkilega glaðlegt vín sem ætti að höfða til gríðarlega margra og er algjörlega frábær staðgengill “venjulegra” freyðivína.